Þetta orðasafn gefur skýringar á hugtökum eins og þau eru notuð á Lingu@net World Wide. Því er ekki ætlað að vera ýtarlegt. Orðin sem þar er að finna eru þau sem notendur vefsins hafa óskað eftir skýringum á.
- Áreiðanlegur
- Áreiðanlegt tungumálapróf eða annað matstæki gefur sömu niðurstöðu í sama hópi ef prófið er endurtekið, óháð því hver fer yfir prófið. Próf getur aldrei verið fullkomlega áreiðanlegt en góð próf leitast við að vera mjög áreiðanleg.
- Byrjandi
- Orðið byrjandi vísar til stiga A1 og A2 eins og þau eru skilgreind á heildarkvarða samevrópska tungumálarammans. Athugaðu að stundum er námsefni grundvallað á mismunandi skilgreiningum á „byrjandi”.
- Forskeyti
- Orðhluti sem unnt er að setja fyrir framan orð til að búa til nýtt orð, til dæmis ó eða endur eins og í ómerkja eða endurskrifa.
- Frummál
- Frummál er tungumálið sem námsefnið eða vefsíðan er sett fram á. Það er auðveldara að nota vefsíður á frummáli sem þú kannt
þegar. Til dæmis:
- Vefsíða til finnskunáms, sem ætluð eru fyrir þýskumælandi, útskýrir málfræði og orðaforða á þýsku: finnska = markmál, þýska = frummál.
- Ensk-spænsk orðabók: enska = frummál, spænska = markmál.
- Rannsóknargrein á hollensku um það hvernig á að kenna ungum nemendum frönsku: hollenska = frummál, franska = markmál.
- Færni
- Að kunna tungumál felur í sér marga þætti, svo sem lestur, ritun, hlustun og tal. Þeir eru kallaðir færniþættir. Málfræðiþekkingu og orðaforða er unnt að þjálfa sér og eru oft á lista yfir færni, jafnvel þó að þessir þættir séu hluti af öðrum færniþáttum. Framburð og stafsetningu má einnig líta á sem sérstaka færniþætti innan sviðanna tal og ritun. Félagsmenningarleg og hagnýt færni vísar til getu til að nota tungumálið á viðeigandi menningarlegan og félagslegan máta.
- Gildur
- Gilt tungumálapróf eða annað matstæki metur það sem það á að meta. Próf geta aldrei verið fullkomlega gild en góð próf leitast við að vera sem gildust.
- Hlutverkaleikir
- Námsaðferð þar sem þú tekur að þér hlutverk til þess að þjálfa margs konar tungumálafærni.
- Hreyfiskyns- eða snertiskyns-
- Nemendur kjósa sér mismunandi stíl við tungumálanám. Hreyfiskynsnemandi kýs að læra með því að hreyfa sig og taka þátt með athöfnum (einnig kallaður snertinemandi).
- Lengra kominn
- Orðin lengra kominn vísa til stiga B1 og B2 eins og þau eru skilgreind á heildarkvarða samevrópska tungumálarammans. Athugaðu að stundum er námsefni grundvallað á mismunandi skilgreiningum á „lengra kominn”.
- Lengst kominn
- Orðin lengst kominn vísa til stiga C1 og C2 eins og þau eru skilgreind á heildarkvarða samevrópska tungumálarammans. Athugaðu að stundum er námsefni grundvallað á mismunandi skilgreiningum orðanna „lengst kominn”.
- Lykilorð
- Mikilvægustu heiti og orðasambönd.
- Markmál
- Markmál er það tungumál sem þú vilt læra eða sem þýtt er yfir á. Að auki, í tengslum við Lingu@net World Wide, er markmál
tungumálið sem vefsíðan á að kenna eða sem vefsíðan vísar til. Til dæmis:
- Vefsíða til finnskunáms, sem ætluð eru fyrir þýskumælandi, útskýrir málfræði og orðaforða á þýsku: finnska = markmál, þýska = frummál.
- Ensk-spænsk orðabók: enska = frummál, spænska = markmál.
- Rannsóknargrein á hollensku um það hvernig á að kenna ungum nemendum frönsku: hollenska = frummál, franska = markmál.
- Nafnorð
- Orð sem vísa til hlutar, manneskju eða hugmyndar, t.d. bíll, dóttir, vinátta.
- Raunefni
- Vefsíður á markmálinu sem gætu nýst við tungumálanám og -kennslu enda þótt þær hafi ekki upphaflega verið gerðar með það í huga, t.d.: dagblöð, veðurspár á netinu, tímaáætlanir, leiðbeiningar um söfn og sýningarsali. Mundu að hægt er að fræðast heilmikið án þess að skilja hvert orð!
- Samheiti
- Orð sem þýðir (meira eða minna) það sama og annað orð, t.d. stór = mikill.
- Stig
- Tungumálakunnátta er allt frá því að þekkja nokkur orð til þess að hafa hæfni og færni til samskipta við ýmsar krefjandi kringumstæður. Þessari braut er hægt að skipta í þrep sem kölluð eru stig, svo sem byrjandi, lengra kominn og lengst kominn.
- Sýndarheimar
- Einskonar þrívíður ímyndaður netheimur eða leikur þar sem þátttakendur geta búið til persónur eða skjáverur (avatars) og kannað heiminn, tekið þátt í spjalli eða spilað flókna leiki. Tungumálanám er algengasta námið sem í boði er í sýndarheimum þar sem margir háskólar, tungumálamiðstöðvar og málaskólar nota þrívíddar sýndarheima til að styðja við tungumálanámið.
- Sögn
- Orð sem vísar til athafnar eða atburðar, t.d. hlaupa, læra, dreyma.
- Tungumálaskipti
- Tvær manneskjur læra tungumál hvor annarrar með því að hittast reglulega, augliti til auglitis eða með tölvupóstskrifum, netspjalli eða talast við í síma o.s.frv. Helming tímans nota þær annað tungumálið og hinn helming tímans hitt.
[ efst ]
