Blogg má nota til að æfa lestrar- og ritunarfærni með því að eiga samskipti við aðra „bloggara” alls staðar í heiminum.
Blogg er í grundvallaratriðum gagnvirk vefsíða þar sem látnar eru í ljós skoðanir á málefnum og gestir geta svarað. Þannig verður oft til netsamfélag um efni sem er sameiginlegt áhugamál. Blogg getur verið allt frá persónulegum síðum, eins og opinber dagbók skrifuð af einstaklingi, til blogga sem birt eru af stofnunum, háskólanámskeiðum eða hópum með sameiginlega hagsmuni. Það eru til margar mismunandi gerðir af bloggi og ókeypis hugbúnaðarpakkar eru á boðstólum á netinu svo þú getur búið til þitt eigið blogg.
Til þess að æfa þig í tungumálinu sem þú ert að læra gætir þú:
- sett upp þitt eigið blogg, skrifað um daglega reynslu þína, deilt ljóðum eða ljósmyndum með öðrum, beðið lesendur um skoðun þeirra á málefnum sem þú hefur áhuga á, allt þetta á tungumálinu sem þú ert að læra
- lesið blogg annarra og gefið umsögn þína
- sett á fót blogg með öðrum tungumálanemum eða þeim sem hafa erlenda málið að móðurmáli sínu og skrifað það saman, búið t.d. til sögu eða skrifað um sameiginlegt áhugamál
- lestu fréttir og skoðanir sem aðrir bloggarar í heiminum setja fram og skrifaðu um fréttir frá þínu landi á tungumálinu sem þú ert að læra
Sumir bloggþjónar hjálpa þér að finna aðra bloggara til að skiptast á bloggi eða ræða efni sem þú hefur áhuga á.
arabíska, baskneska, búlgarska, danska, eistneska, enska, finnska, franska, galisíska, gríska, hindí, hollenska, írska, íslenska, ítalska, japanska, katalónska, kínverska, lettneska, litháenska, maltneska, portúgalska, pólska, rúmenska, rússneska, slóvakíska, slóvenska, spænska, sænska, tékkneska, ungverska, þýska
