Netvinir eru eins og „pennavinir" þess tíma þegar tölvur voru ekki til, eini munurinn er að netvinir senda tölvupóst í stað bréfa. Ef þú átt netvin sem hefur að móðurmáli það tungumál sem þú ert að læra, getur þú tekið þátt í tungumálaskiptum. Með félaga þínum í tungumálaskiptunum getið þið hjálpast að við að æfa það sem þið kunnið, bætt tungumálafærni ykkar og fræðst um menningu hvor annars. Auðvelt er að gera þetta með því að senda hvor öðrum tölvupóst (sem „netvinir"). Til eru vefsíður sem auðvelda þér að finna félaga við hæfi og gefa ábendingar um hvað þið getið gert, svo sem: Tandem Server Bochum.
Tungumálaskipti við netvin eru ódýr og hvetjandi leið til að æfa og bæta færni þína í því tungumáli sem þú ert að læra.
arabíska, baskneska, búlgarska, danska, eistneska, enska, finnska, franska, galisíska, gríska, hindí, hollenska, írska, íslenska, ítalska, japanska, katalónska, kínverska, lettneska, litháenska, maltneska, portúgalska, pólska, rúmenska, rússneska, slóvakíska, slóvenska, spænska, sænska, tékkneska, ungverska, þýska
