Fara á upphaf innihalds síðunnar.
Þú ert á

Saga Camillu

Fyrir 5 árum ákvað ég að læra frönsku hér á Spáni þar sem ég hef búið síðastliðin 10 ár.

Verkfærin sem ég hafði voru þessi: Bók um franska málfræði, 6 mánaða kennsla (síðan fann ég fjölmargar vefsíður með málfræði, æfingum og jafnvel hlustun), nokkrir geisladiskar með framburðaræfingum sem byggja á raddgreini, stöðugur lestur (bóka, tímarita, dagblaða), myndgeisladiskar, tungumálaskipti við frönskumælandi (3) og 3. ára netspjall. Ég hef tvisvar sinnum komið til Parísar, en ég gat aðeins stoppað stutt í bæði skiptin. Samt sem áður hef ég tiltölulega góða færni og tala frönsku ágætlega við næstum hvaða kringumumstæður sem er. Með netspjalli lærði ég heilmikið með því að herma eftir, og ég öðlaðist afskaplega mikið sjálfsöryggi og orðfimi. Ég verð að taka fram að ég hef æft mig í frönsku í u.þ.b. 3 ár núna, 2-3 stundir daglega, og held áfram að lesa á frönsku daglega. Ég held að slík tengsl við markmálið séu nauðsynleg til þess að ná árangri.

Þessi persónulega saga sýnir hversu árangursríkt netspjall getur verið til að læra tungumál.

[ efst ]
Fylgstu með okkur á:
facebook Facebooktwitter Twitter