Lingu@net World Wide er rafrænt gagnasafn á mörgum tungumálum fyrir nám í erlendum tungumálum.
Vefurinn veitir upplýsingar um, og krækjur á, gæðaprófað efni á netinu alls staðar að úr heiminum varðandi tungumálanám og -kennslu.
Lingu@net World Wide byggir á þeirri hugmyndafræði að sért þú að læra eða kenna tungumál gætir þú haft áhuga á upplýsingum á hvaða tungumáli sem þú skilur - ekki aðeins upplýsingum sem þú finnur með því að leita á móðurmálinu.
Lingu@net World Wide veitir aðgengi á mörgum tungumálum að rúmlega 3,500 skrásettum vefsíðum, margar þeirra sérstaklega ætlaðar nemendum. Vefurinn veitir einnig fullorðnum nemendum upplýsingar um hvernig eigi að læra tungumál, hvernig þeir geta metið færni sína og hvernig þeir komast í netsamband við aðra nemendur. Þessi hluti vefsins hefur verið þróaður af sérfræðingum í tungumálanámi og -kennslu um alla Evrópu.
Þú getur nú farið inn á allan vefinn á: arabísku, basknesku, búlgörsku, dönsku, ensku, eistnesku, finnsku, frönsku, gallisísku, grísku, hollensku, hindí, íslensku, írsku, ítölsku, katalónsku, kínversku, japönsku, lettnesku, litháísku, maltnesku, pólsku, portúgölsku, rúmönsku, rússnesku, slóvakísku, slóvensku, spænsku, sænsku, tékknesku, ungversku og þýsku.
Lingu@net World Wide vefurinn er þróaður af 34 stofnunum í 25 Evrópulöndum.
Áður hét vefurinn Lingu@net Europa en þá var aðalmarkhópurinn tungumálakennarar. Verkefnið er styrkt af menntaáætlun Evrópusambandsins, Lifelong Learning Programme (KA2 Languages action, 2009 - 2011), með það markmið að:
- fjölga tungumálum (þ.m.t. tungumál sem töluð eru utan Evrópu),
- auka við gagnasafnið og
- veita fullorðnum tungumálanemendum aðstoð.
Lingu@net World Wide er ókeypis. Þér er velkomið að nota það, mæla með efni sem yrði bætt við safnið og allar athugasemdir eru velkomnar.

